Bókin Skrefin að Vatnajökulsþjóðgarði
Bókin Skrefin að Vatnajökulsþjóðgarði var sett saman og gefin út árið 2013. Bókin er 282 blaðsíður að lengd með fjölda litmynda.
Tilgangur bókarinnar var að safna saman á einum stað öllum skrifum, athugasemdum, og atburðarás, varðandi tillögur að því að stofna friðað svæði eða þjóðgarð á þessum stað, áður en Alþingi og ríkisstjórn, ásamt umhverfirsráðuneytinu, fóru gegnum það ferli að athuga og samþykkja að Vatnajökull skyldi stofnaður. Bókin tekur því til áranna 1992 til 1999. Hugmyndin var að þessi saga gæti gleymst, og gott væri að hafa yfirlit yfir þessa þætti til staðar, til að kynslóðir framtíðar gætu kynnt sér söguna.
Bókin var framleidd á pappír í nokkrum eintökum og komið fyrir í bókasöfnum í Reykjavík og á svæðunum kringum þjóðgarðinn, frá Akureyri, austur fyrir og til Kirkjubæjarklausturs. Bókin var ekki boðin til sölu.
Þú getur hlaðið niður eintaki af bókinni í rafrænu PDF formi, ókeypis, með því að hægri-smella á tengilinn: